Fréttir Bresk-íslenska
6.4.2009
Vel heppnaður fundur um kosti og galla ESB
Mikil ánægja var meðal fundargesta sem sóttu fund átta evrópskra millilandaráða undir yfirskriftinni „ ESB- kostir og gallar“ á Grand hóteli í vikunni.Á fundinum fóru ræðumenn yfir umræðuna í sínum löndum um aðildina að sambandinu, áður en gengið var til aðildarumræða og hvernig staðan er í dag.
Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra ávarpaði fundinn. Sjá ræðu hans hér en tekið fram að talað orð er það sem gildir.
Engin ákörðum hefur verið tekin að dönskum yfirvöldum að sækja um aðild að myntbandalaginu. Dr. Martin Marcussen s dósent við stjórnmálafræði við Kaupmannarhafnarháskóla sagði að í upphafi hafi fólk mest hugsað um verðlag á vörum, en hefði áttað sig á því að aðild að ESB hefði mun víðtækari áhrif, s.s. á velferðarríkið og öryggismál. Annars er hægt að sjá glærur Martins hér.
Mario Katsioloudes, prófessor við Grísk-bandaríska háskólann í Aþenu gerði í upphafi máls síns grein fyrir sérstakri stöðu eyjarinnar Kýpur: Þar sem hlutir eyjarinnar er í ESB en hinn þ.e. tyrkenski minnihlutinn fyrir utan. Hér má sjá glærur Mariosar
Alyson Bailes, gestaprófessor við Háskóla Íslands fór yfir tilgang stofnunar ESB og hvaða var haft að leioðarljósi. Hún fór yfir öryggismál í víðasta skilningi, frá fuglaflensu yfir í umhverfismál og allt þar á milli. Hér má sjá glærur Alyson.





